Víðir tapaði milljónum króna á 20 dögum - „Enginn sagði neitt“

„Fyrir nokkrum árum töpuðum við vinur minn 4,2 milljónum á tuttugu dögum,“ segir Víðir Snær Björns­son í sam­tali við Lokum.is.

Víðir er 43 ára málari og er frá­sögn hans hluti af ár­verkni­her­ferð SÁS, sam­taka á­huga­fólks um spila­fíkn, sem hefur það mark­mið að varpa ljósi á hversu skað­leg fíkn í spila­kassa getur orðið.

Víðir þekkir spila­fíkn betur en margir enda hefur hann tapað stórum fjár­hæðum í kössunum. Hann hefur ekki spilað í þrjá mánuði þar sem kassarnir hafa verið lokaðir og kveðst hann vona að þeir opni ekki aftur. „Plís ekki opna þessa kassa aftur,“ segir hann í við­talinu.

Mest hefur Víðir tapað tæp­lega einni milljón króna á einum degi, en al­gengast er að hann tapi á bilinu 50 til 100 þúsund krónur. Víðir hefur einnig reynslu af því að lifa með á­fengis- og vímu­efna­fíkn en segir í við­talinu að spila­fíknin sé sú öflugasta.

„Þegar mér líður eins og eitt­hvað vanti í lífið þá fer ég fyrst í spila­kassann til að stoppa hausinn. Þar loka ég út heiminn. Deyfi mig og gleymi öllu. Ég fer frekar í kassann en til sál­fræðings eða læknis. Það er skrýtið hvernig þetta virkar,“ segir hann.

Stærsti vinningurinn sem Víðir hefur unnið í spila­kassa voru 1.370 þúsund krónur.

„Mamma geymdi fyrir mig hálfa milljón. Það kvöld tapaði ég 450 þúsund krónum og af­gangurinn fór á tveimur dögum. Það fylgja því engar til­finningar að vinna. Mér er alveg sama þó ég vinni. Það er best að vinna ekki því þá get ég ekki haldið á­fram að spila,“ segir hann.

Hann og vinur hans töpuðu einu sinni rúmum fjórum milljónum króna á 20 dögum eins og hann bendir á hér að framan.

„Við sátum hlið við hlið í spila­sal og spiluðum og spiluðum. Við vorum fyrstir inn í kassana og seinastir út. Enginn sagði neitt. Enginn pikkaði í okkur og sagði að nú væri nóg komið. Við vorum farnir að þekkja starfs­menn á báðum vöktum. Töpuðum 50 til 100 þúsund krónum á klukku­stundar­fresti. Enginn sagði neitt. Plís ekki opna þessa kassa aftur.“

Hér má lesa alla sögu Víðis og kynna sér á­takið betur.