Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, segir að stór áfangi hafi náðst í baráttunni við kórónuveirunni hafi náðst í dag.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt annað skref í afléttingaráætlun sinni. Samkomutakmarkanir fara úr 50 manns upp í 200.
Reglur úr sóttkví falla úr gildi í dag sem þýðir að nær 10 þúsund manns losna strax úr sóttkví. Einangrun er áfram eins þar sem einstaklingar með staðfesta COVID-19 sýkingu geta losnað úr einangrun eftir fimm daga séu þeir einkennalitlir eða einkennalausir og með hita lægri en 37,8°C.
Þá hefur skólareglugerðin verið afnumin.
Víðir segir á Twitter: „Stór áfangi í baráttunni í dag Skref tvö af þrjú í afléttingum. Þurfum tvær vikur til viðbótar til að bylgjan nái hámarki og álagið á kerfið lagist,“ segir hann og bætir við:
„Það er auðvitað spurning um líf og heilsu ef ofurálag skapast á heilbriðgiskerfið með fjölda smitaðara þó miklu færri veikist illa.“