Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, er mættur aftur til starfa og hann verður á upplýsingafundi almannavarna sem hefst klukkan 11.
Eins og flestum er kunnugt greindist Víðir með COVID-19 þann 25. nóvember síðastliðinn eftir að smit kom upp í nærumhverfi hans. Víðir veiktist nokkuð mikið og aðeins eru rúmir ellefu dagar síðan greint var frá því að hann hefði fengið lungnabólgu.
Hann hefur þó verið að hressast undanfarna daga og var hann mættur í eldlínuna um helgina vegna atburðanna á Seyðisfirði.
Með Víði á fundinum verður Alma D. Möller landlæknir en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verður fjarri góðu gamni enda í sóttkví þessa dagana. Gestir fundarins verða Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri Heilbrigðisráðuneytisins og Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar.