Víðir segir til skoðunar að stytta einangrun: „Á­lagið er mikið“

Víðir Reynisson segir sóttvarnaryfirvöld nú skoða það að stytta einangrun og sóttkví hjá fólki vegna Covid-19 sýkingar með tilliti til nýrra leiðbeininga frá Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna. Víðir ræddi stöðuna og fjölda smita innanlandsvið Fréttablaðið.

„Þessi fjölgun er heldur um­fram þær spár sem við vorum með, þannig manni líst ekki vel á stöðuna og þær fréttir til við­bótar með Land­spítalann og sjúk­lingana þar sem greindust, þær valda líka á­hyggjum, því þetta veldur á­lagi þar sem það þarf tals­vert fleiri starfs­menn til að sinna Co­vid sjúk­lingum vegna búnings og þess háttar.“

Hann hvetur landsmenn sem gera sér grein fyrir því að þeir hafi verið útsettir fyrir veirunni að skrá sjálfa sig í sóttkví.

Víðir segir nú til skoðunar að endur­meta tímann sem fólk er í ein­angrun vegna veirunnar. „Við erum alltaf bara að skoða gögnin og nýjustu upp­lýsingarnar þannig við erum alltaf að breyta kerfinu eftir því sem þekkingin eykst,“ segir Víðir.

Viðtal Fréttablaðsins við Víði.