Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, glímir við lungnabólgu eftir að hafa smitast af COVID-19. Víðir hefur verið fjarri góðu gamni undanfarinn hálfan mánuð eða svo eftir að hafa greinst jákvæður þann 25. nóvember.
Fréttablaðið hefur eftir Rögnvaldi Ólafssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni að ástand Víðis fari ögn skánandi. Dagarnir séu þó misjafnir og hitinn taki sig upp af og til.
Rögnvaldur kveðst vona að Víðir snúi til baka í vinnu sem fyrst.
„Við söknum hans mikið og verðum glöð þegar hann verður kominn til baka í fullu fjöri,“ segir hann en frétt Fréttablaðsins má lesa í heild sinni hér.