Víðir í verðskuldað vikufrí frá almannavörnum

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, er kominn í vikufrí. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá almannavörnum, við mbl.is. Rögnvaldur leysir Víði af á upplýsingafundi almannavarna í dag og næsta fimmtudag.

„Hann er mjög vel að þessu fríi kom­inn; hann er bú­inn að vera vinna í þessu frá byrj­un nán­ast og ekki fengið nema stöku helg­ar­frí. Þetta er held ég lengsta sam­fellda frí sem hann fær í næst­um því hálft ár held ég,“ segir Rögnvaldur við mbl.is.

„Þó að menn séu vel stemmd­ir og reynslu­mikl­ir í þessu þá tek­ur svona löng törn á,“ segir hann.

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir, Páll Þór­halls­son verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðuneyt­inu, verða á fundinum í dag ásamt Rögnvaldi. Einnig verður þar Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.