Staða Covid-faraldursins hér á landi er þung og þyngist dag frá degi. Þrír hafa látist á aðeins nokkrum dögum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi Almannavarna allt stefna í það að hann þurfi að leggja til að sóttvarnarreglur verði hertar fljótlega.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, endaði fundinn á að fara yfir markmiðin. Má segja að hann hafi haldið eldræðu yfir þjóðinni:
„Markmiðin okkar hafa verið skýr allan tímann. Við ætlum að verja heilbrigðiskerfið til að tryggja lágmarksþjónustu. Við ætlum að verja viðkvæma hópa því þar eru veikindin algeng og alvarlegri. Við ætlum að hindra innkomu veirunnar á landamærunum. Og við ætlum að ná smitum niður. Framtíðarstefnan er að hér verði engar takmarkanir.“
Til að ná þessum markmiðum sagði Víðir að það þurfi að varða leiðina út úr faraldrinum. Fyrsta varðan er að ná smitum niður í 500 á dag, þá muni líklega aðeins einn leggjast inn á sjúkrahús.
„Það þekkja allir þessa rullu okkar. Það eru allir orðnir hundleiðir á henni, hundleiðir á okkur. Það dugar ekkert. Það dugar ekki að vilja bara eitthvað annað. Það er ekki bara nóg að benda á einhverja aðra hluti. Það er ekki nóg að vera bara fúll og pirraður yfir ástandinu. Það skilar okkur engu.“
Víðir hélt áfram:
„Við saman höfum gert svo mikið. Við höfum gert það sem hefur þurft og vitum hvað hefur gagnast okkur. Það hefur mikið verið kallað eftir því að einstaklingurinn taki ábyrgð sjálfur og kröfur um að takmarkanir stjórnvalda minnki. Nú eru ákveðnar kröfur í gangi um að herða aðgerðir. Við getum öll brugðist við því með því að hegða okkur samkvæmt því að það séu harðari aðgerðir í gangi.
Við vitum að þetta er ekkert auðvelt. Það er ljós framundan. Það gæti dimmt meira áður en það birtir. Við Íslendingar vitum að öll él styttir upp um síðir. Næstu dagana er kannski bara ágætt að ferðast í huganum. Sitja kyrr á sama stað en fara um og ferðast.“