Norsku þættirnir Exit hafa notið töluverðra vinsælda hér á landi og það ekki að ástæðulausu. Þættirnir segja frá fjórum vinum, vellauðugum siðleysingjum, sem lifa og hrærast í fjármálaheiminum í Noregi og kalla ekki allt ömmu sína.
Víðir Sigurðsson, einn reyndasti íþróttafréttamaður þjóðarinnar, skrifar skemmtilegan pistil um þættina á sjónvarpssíðum Morgunblaðsins í dag.
„Norsku fjórmenningarnir Adam, William, Henrik og Jeppe eru eins ólíkir sögupersónum á borð við Finn, Jonna, Önnu og Dísu, eða hvað þau hétu nú öll í Enid Blyton-bókunum sem maður ólst upp við á sínum tíma, og mögulegt er. Samt bíð ég nú álíka spenntur eftir því hvernig norsku útrásarvíkingarnir í Útrás nái að toppa sjálfa sig í siðleysinu í næstu þáttaröð og ég beið eftir næsta ævintýri fjór- eða fimmmenninganna um og fyrir 1970.“
Önnur þáttaröðin var tekin til sýninga ekki alls fyrir löngu og eru allir þættirnir aðgengilegir í RÚV-appinu. Víðir viðurkennir að hann hafi ekki getað beðið í viku eftir næsta þætti í línulegri dagskrá og er þáttaröð númer tvö nú lokið.
„Væntanlega kemur það ekki í ljós fyrr en árið 2023 hvernig Adam gengur að glíma við lög og rétt og fyrrverandi eiginkonu, hvort William sé lífs eða liðinn, hvort Henrik hafi sagt of mikið í viðtalinu og hvað Jeppe dettur næst í hug.“
Víðir bendir réttilega á að eftir að hafa horft á þessa þáttaröð viti hann allt um það hvernig hægt er að greiða ótæpilega á innherjaupplýsingum og hversu langt er hægt að komast á skítlegu eðli. Víðir endar pistilinn sinn á þessum orðum:
„Það magnaða er að þetta er allt saman byggt á frásögnum úr norska fjármálaheiminum. Sem ætti að vera á margan hátt líkur þeim íslenska, eða hvað?“