Víðir gerði mis­tök: „Þetta var bara rugl. Það er bara þannig“

Mikið hefur mætt á Víði Reynis­syni síðustu mánuði vegna út­breiðslu CO­VID-19. Hann hefur setið blaða­manna­fundi dag­­lega og reynt eftir bestu getu að halda lands­­mönnum upp­­­lýstum. Víðir er reynslu­mikill og hefur tekið þátt í sam­ræmdum að­­gerðum vegna stórra náttúru­ham­fara; snjó­­flóðunum á Vest­fjörðum 1995, jarð­­skjálftunum á Suður­landi 2000 og 2008 og eld­­gosinu í Eyja­­fjalla­­jökli 2010. Víðir hefur gert mis­tök á sínum ferli og er hann stað­ráðinn í að gera þau ekki aftur. Þau mistök áttu sér stað þegar gosið í Eyjafjallajökli stóð yfir.

Víðir hefur fengið mikið og verðskuldað hrós fyrir framgöngu sína. Á Facebook-síðunni Hrós dagsins er honum þakkað fyrir að stappa stálinu reglulega í íslensku þjóðina. Það er þó helst að íslenska þjóðin hafi áhyggjur af því að Víðir keyri sig út.

„Hann þarf hvíld eins og allir aðrir,“ sem tekur þátt í umræðunum.

Og hver eru þessi mis­tök og hve­nær áttu þau sér stað? Jú, í þeirri stór­góðu heimildar­mynd Kristjáns Má Unnars­sonar um 10 ára af­mæli Eyja­fjalla­jökuls, játaði Víðir að hafa gert stór mis­tök.

Í kvik­myndinni um Eyja­fjalla­jökul ræddu í­búarnir um hversu djúp­stæð á­hrif gossins voru á íbúa á svæðinu, bæði and­leg og líkam­leg. Á­hrifin skilja fæstir nema lík­lega þau sem bjuggu á svæðinu. Berg­lind Hilmars­dóttir bóndi á Núpi hafði þetta að segja um Víði og störf hans í tengslum við Eyja­fjalla­gosið:

„Hann var þarna allan tímann. Á ein­hverjum tíma­punkti fór ég til hans og sagði: „Víðir minn, áttu hvergi heima?“ því hann var alltaf í heima­landi. Hann var alltaf að.“

Hringbraut getur upplýst um það að Víðir er mjög meðvitaður um heilsu sína en hann tjáði sig í heimildarmyndinni.

Víðir segir í sam­tali við Kristján Má að að­gerðir hafi staðið í mun lengri tíma en búist hafði verið við.

„Þetta var bara rugl. Það er bara þannig. Ég gerði þarna fullt af mis­tökum, meðal annars í þessu. Ég keyrði mig al­gjör­lega út,“ segir Víðir í heimildar­myndinni. „Maður var hérna oft tuttugu tíma. Rök­hugsunin verður verri og maður er ekki al­menni­legur stjórnandi.“

Víðir kveðst nýta þessu reynslu í verk­efninu sem hann hefur tekist á við síðustu mánuði. Víðir sagði að mikil­vægt væri að huga að hvíld og fara ekki of­fari. Annars er hætta á ferðum.

„Maður verður skap­styggur og tekur ekki eins góðar á­kvarðanir. Það er reynsla sem ég nýti mér í þessu verk­efni sem við erum núna, ég passa miklu betur uppá mig núna, að sofa og hvíla mig og hugsa um sjálfan mig,“ sagði Víðir að lokum sem um helgina naut þess að eiga stund með nýjum af­komanda en Víðir varð afi um helgina.