Víðir fékk vökva í æð: „Hann er ekkert að barma sér“

Rögn­valdur Ólafs­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn hjá al­manna­varna­deild ríkis­lög­reglu­stjóra, segir að Víðir Reynis­son sé allur að koma til. Víðir hefur eins og lands­menn væntan­lega vita flestir glímt við CO­VID-19 að undan­förnu.

Í gær var greint frá því að Víðir hefði verið kallaður inn á CO­VID-göngu­deild Land­spítalans þar sem líðan hans hafði farið versnandi. Hann fékk að fara heim að loknum rann­sóknum.

Rögn­valdur segir í sam­tali við DV.is að Víðir sé betri í dag en hann var í gær en daga­munur sé á honum eins og þekkt er þegar CO­VID-19 er annars vegar. Segir hann að Víðir hafi fengið vökva í æð og hann hafi orðið hressari við það.

„Víðir ber sig vel og ekkert að barma sér,“ segir hann.

Eins og greint var frá í morgun greindust 14 smit hér á landi í gær og var mikill meiri­hluti þeirra í sótt­kví, eða 12 ein­staklingar. Rögn­valdur segir að þetta séu já­kvæðar tölur þó ekki sé gott að sjá hversu margir eru í ein­angrun vegna veirunnar.