Víðir endalaust hóstandi og kallaður inn á spítala en kominn heim

Víðir Reynisson er með slæman hósta og íferð í lungum. Hann er nú á tíunda degi veikinda og er að upplifa hefðbundið bakslag í baráttunni gegn COVID-19 en hann var kallaður inn á spítala í morgun vegna veikindanna.

Þetta kemur fram í samtali Fréttablaðsins.is við Rögnvald Ólafsson, yfirlögregluþjón. Rögnvaldur segir Víði nú vera komin heim, hann sé ekki í lífshættu.

„Ég talaði við hann í morgun og hann var endalaust hóstandi og er með íferð í lungunum. Þetta er eitthvað sem margir kannast við sem fengið hafa COVID að þegar þetta er komið í lungun er þetta orðið leiðinlegt.“

10 dagar eru frá því að Víðir greindist. Víðir var hress þann 28. nóvember síðsatliðinn en hafði verið verri 27. Svo leit út fyrir að hann væri að braggast en nú er ljóst að verulegt bakslag er komið í veikindin hjá Víði.