Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sagðist á upplýsingafundi í morgun hafa fengið upplýsingar um að börn og fullorðnir hafi fengið mjög ljót skilaboð í tengslum við þau hópsmit sem hafa komið upp undanfarnar vikur.
„Við höfum oft talað um að veiran sé andstæðingurinn í þessu, það ætlar enginn að smitast og það ætlar enginn að smita annan. En nú erum við að fá upplýsingar um það að börn og fullorðnir, sem tengjast hópsmitum, sem hafa lent í því að vera bara hluti af hópsmitum, eru að fá öfgafull skilaboð, rasísk og mjög ljót skilaboð,“ sagði Víðir og bætti við að þessir einstaklingar séu jafnvel lagðir í einelti úti á götu fyrir það eitt að vera frá tilteknu landi.
„Ekki dæma alla fyrir eitthvað sem örfáir hafa gert,“ sagði Víðir sem hvatti fólk til að sýna samstöðu og jafnframt að mæta í sýnatöku. „Við erum öll í þessu saman, sama hvaðan við komum. Við erum öll almannavarnir.“