Víðir Hólm Guðbjartsson, bóndi í Grænuhlíð í Arnarfirði, birti óhugnanlegt myndband á Facebook-síðu sinni um helgina. Á því má sjó dauða rollu sem drukknaði í keldu þar sem fyllt hafði verið upp í skurð.
Víðir ræðir málið við Fréttablaðið þar sem hann vandar Votlendissjóð ekki kveðjurnar. Hann segir sjóðinn leggja dauðagildrur fyrir skepnur og fólk með frágangi þeirra á fyllingu skurða á svæðinu.
„Í þessu tilfelli, á Fífustaðadal, þá drekkja þeir heilum dal og búa til dauðagildrur. Þetta er hræðilegt fyrir bæði skepnur og fólk. Þarna drekkja þeir öllu saman,“ hefur Fréttablaðið eftir Víði en hann segir að frágangur Votlendissjóð sé með ólíkindum. Í tilfelli rollunnar hafði hún drukknað í grunnu vatni eftir að hún festi sig í drullu.
„Það drepast alltaf kindur, en maður reynir að gera allt til að bjarga þessum greyjum,“ segir hann. Miðað við aðstæður telur Víðir að kindin hafi dáið hægum dauðdaga og hún líklega setið föst í svaðinu í sólarhring áður en hún drapst. „Hún hefur verið búin að krókna úr kulda. Þetta er hreint og klárt dýraníð,“ segir hann.
Í myndbandi á Facebook-síðu sinni vandar Víðir Votlendissjóði ekki kveðjurnar. „Afsakið orðbragðið, en þessir djöfulsins fávitar,“ segir hann meðal annars.
Fréttablaðið ræðir við Einar Bárðarson, framkvæmdastjóra Votlendissjóðs, sem segist vera miður sín yfir því hvernig fór.