Víðir átti að byrja í fríinu sínu í dag

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, fór heim úr vinnunni í gær feginn því að vera kominn í frí. Hann átti inni sumarfrí sem hann ætlaði að taka út núna. Um kvöldið hófst síðan gos við Fagradalsfjall og plönum Víðis um verðskuldað frí því skotið á frest.

„Jú, þetta átti að vera fyrsti dagur í fríinu,“ staðfestir Víðir við Fréttablaðið. „Það frestast eitthvað aðeins en vonandi ekki lengi.“

Á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í lok febrúar sagði Víðir að hann glímdi enn við eftir­köst Co­vid-19, þremur mánuðum eftir að hann greindist með veiruna. Hann greindist smitaður í lok nóvember í fyrra og fékk síðan lungna­bólgu ofan í veikindin. Fríið hefði því ef­laust verið kær­komið fyrir Víði og við skulum vona að það verði ekki of langt í að hann nái að taka það út.