Glúmur Baldvinsson, einn af oddvitum Frjálslynda lýðræðisflokksins, er yfirleitt með munninn fyrir neðan nefið og segir sínar skoðanir umbúðalaust.
Glúmur á það þó til að hlaupa á sig og gerði hann það á dögunum þegar hann skrifaði um forystu íslensku stjórnmálaflokkanna. Hjólaði hann í forystumenn þeirra flokka sem eiga sæti á þingi auk Sósíalistaflokksins.
Hann sagði að Inga Sæland hefði grátið sig inn á þing og væri enn búsett í íbúð á vegum Öryrkjabandalagsins. Þar gerði Glúmur mistök því Inga er búsett í eigin íbúð. Hann bað Ingu afsökunar á þessu í gærkvöldi:
„Um daginn skrifaði ég pistil um forystumenn flokkanna sem birtur var í DV. Þar bar ég Ingu Sæland þungum sökum sem ekki eiga við rök að styðjast. Ég byggði þann málflutning á villandi upplýsingum. Í því ljósi vil ég biðja Ingu Sæland einlægrar afsökunar og óska ég henni alls hins besta. Ég er að mörgu leyti líkur móður minni sem innrætti mér að koma vel fram við alla, háa sem lága. Og þegar mér bregst sú bogalist nístir samviskan mig.“
Inga Sæland brást vel við þessari afsökunarbeiðni Glúms og hlaut hún mikið lof fyrir.
„Kæri Glúmur, ég þakka þér þitt fallega hjarta. Ekki margir sem myndu sjá að sér á eins einlægan hátt og þú gerir nú. Ég óska þér sömuleiðis alls hins besta. Afsökunarbeiðnin er samþykkt af heilum hug.“