Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, er harðorður í garð Ásdísar Kristjánsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins. Ásdís ræddi um stöðu efnahagslífsins og komandi kjarasamninga í viðtali í Markaðnum í dag.
Viðar segir á Facebook: „Öll eru sammála um að gullið malast sem aldrei fyrr. Ekki aðeins hinir mannlegu álitsgjafar auðstéttarinnar fullyrða svo, heldur staðfestir þetta sjálf guðlega hönd kauphallarinnar sem mokaði út úr sér met-arðgreiðslum á árinu 2021 og stefnir í annað eins 2022.“
Hann segir að Covid og sóttvarnaraðgerðirnar hafi „ekki svo mikið sem klipið minnstu fiturönd af íslensku auðstéttinni.“
„Þvert á móti: veiran hefur verið auðstéttinni meiriháttar hvalreki,“ segir hann.
„En þið skulið ekki ímynda ykkur að það standi til að úthluta neinu af þessari hrað-bólgnandi köku íslenska veiruhagkerfisins til almennings eða þeirra sem byrðarnar bera -- SA eru mætt til leiks ásamt félögum sínum í SAF til að koma í veg fyrir allt slíkt.“
Beinir hann svo orðum sínum að Ásdísi sem hafi talað um nauðsyn þess að ríkið komi til móts fyrir fyrirtæki.
„Ásdís reynir sem sagt að halda því fram -- andstætt fullyrðingum stéttbræðra hennar úr röðum álitsgjafa sem geta ekki hamið gleði sína og í trássi við hið kristaltæra alheimstungumál arðgreiðslanna sem jú ekki lýgur -- að það sé ekki nú þegar í gangi emjandi og tryllingsleg gróðamaskína,“ segir hann.
„Samkvæmt fyrirmælum Ásdísar þá á vinnandi fólk ekki að biðja um eðlilega hlutdeild í þessari óumdeilanlegu massívu verðmætasköpun sem verkafólk og ómissandi starfsfólk í öllum geirum hefur jú borið upp á bökum sínum í gegnum veiruna, heldur nálgast auðmagnseigendastéttina eins og lasburða og vannærðan sjúkling, færa honum blóm frekar en kröfugerð.“
Hann segir að þetta sé stefið sem koma skuli í kjaraviðræðunum.
„Það verður veisla fyrir áhugafólk um útúrsnúninga, orðfimi og rökræðubrelllur að fylgjast með aðdraganda þessarar kjarasamningagerðar.“