„Kona ein sem ég lít mjög mikið upp til sagði mér í nýliðinni viku: „Veistu Viðar, það er ákaflega hentugt að vera alkóhólisti þessa dagana.“ Ég leyni því ekki að ég var nokkuð hissa á orðum hennar og spurði hana hvað hún ætti nákvæmlega við. „Jú sjáðu til, í þessu ástandi neyðist maður hreinlega til þess að taka einn dag í einu.“
Svona hefst hugvekja séra Viðars Stefánssonar, prests í Landakirkju í Vestmannaeyjum, en hugvekjan er birt á vefnum Eyjar.net.
Eins og greint hefur verið frá hafa 26 tilfelli COVID-19 verið greind í Vestmannaeyjum. Þá hafa íbúar fengið þau fyrirmæli að halda sig í litlum hópum og eru samkomur þar sem eru tíu eða fleiri nú bannaðar. Viðar skrifar meðal annars um stöðu mála í Vestmannaeyjum í hugvekju sinni.
Viðar segir að fullyrðing konunnar sem ræddi við hann á dögunum sé tragíkómísk, þrátt fyrir að í þeim sé nokkurn vísdóm að finna sem öllum ætti að vera kunnuglegur: „Að taka einn dag í einu. Þann vísdóm er einnig að finna hjá frelsaranum: „Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.“
Viðar bendir einnig á að ákveðinn húmor sé að finna í orðum konunnar – húmor sé eitt þeirra tækja sem við notum hversdagslega og í amstri dagsins, meðal annars til að eiga auðveldara með að glíma við erfiðar aðstæður. „Stundum er það jafnvel svo að sannleikurinn finnur sér farveg í gegnum húmor.“
Viðar segir að óþarfi sé að fjölyrða um þá staðreynd að nú skrýtnir dagar í Vestmannaeyjum. „Og þeir verða enn skrýtnari eftir að settar voru reglur um strangara samkomubann í gær. Í raun er óþarfi að tíunda það sem hefur skeð undanfarna daga því nægar eru fréttaveiturnar. Sýkin hefur gert vart við sig hér í samfélagi okkar og dágóður hluti samfélagsins er í sóttkví, sjálfskipaðri eða formlegri. Við finnum öll að taktur samfélagsins slær hægar og ýmsu hefur verið slegið á frest, t.d. fermingum vorsins, og jafnvel aflýst með öllu.“
Viðar bendir einnig á að kvíði og ótti séu fylgifiskar óvissutíma. Það sé auðvelt að kvíða stóru verkefni, sérstaklega þegar ekki sér fyrir endann á því. Verkefnið er í þessu samhengi er COVID-19 faraldurinn. Þá segir Viðar að eðlilegt sé að óttast þegar óljóst er hvað framtíðin ber í skauti sér. „Í slíkum aðstæðum verður maður hreinlega að taka einn dag í einu.“
Viðar segist bera þá von og trú í brjósti að Vestmanneyingar muni sigra þennan vágest sem veiran er. „Það er mikilvægara núna en nokkru sinni fyrr að hlúa að hverju öðru. Við verðum jafnframt að hlusta á áhyggjur og kvíða annarra og virða. Tökum einn dag í einu því við getum varla annað eins og er.“
Hér má lesa hugvekjuna í heild sinni.