Saksóknarar í Þýskalandi telja að Madeleine McCann, sem hvarf sporlaust á Algarve í Portúgal árið 2007, sé látin. Þetta kom fram á blaðamannafundi saksóknara sem hófst klukkan 11 í morgun.
Í gær var greint frá nýjum vendingum í þessu umtalaða mannshvarfi og liggur 43 ára gamall Þjóðverji undir grun um aðild að hvarfinu. Hann sat inni fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn börnum og var á svæðinu þar sem Madeline hvarf. Nafn hins grunaða hefur ekki verið gert opinbert. Bresk, þýsk og portúgölsk löggæsluyfirvöld rannsaka nú málið.
„Við teljum að Madeleine McCann sé látin,“ sagði saksóknarinn á blaðamannafundinum. Biðlaði hann til þeirra sem gætu búið yfir upplýsingum um málið að gefa sig fram.
Hinn grunaði bjó á Algarve á árunum 1995 til 2007 þar sem hann starfaði meðal annars sem þjónn. Hann er talinn hafa verið viðriðinn margt misjafnt á þessum tíma; brotist inn í íbúðir og hótelherbergi auk þess að selja fíkniefni. Þá var hann sakfelldur fyrir nauðgun á Algarve árið 2005, um tveimur árum fyrir hvarf Madeleine McCann. Hann situr nú í fangelsi í Þýskalandi fyrir kynferðisbrot, en hvers eðlis umrætt brot var hefur ekki verið opinberað.
Í frétt Sky News kemur fram að 600 einstaklingar hafi verið skoðaðir sérstaklega í tengslum við hvarf stúlkunnar í maíbyrjun 2007. Upplýsingar um þennan tiltekna einstakling hafi komið inn á borð lögregluyfirvalda árið 2017, tíu árum eftir hvarfið.
Foreldrar Madeleine McCann hafa tjáð sig um nýjustu upplýsingar í málinu og binda þau vonir við að málið leysist. Clarence Mitchell, talsmaður Kate og Gerry McCann, foreldra stúlkunnar, sagði við Sky News að hjónin hefðu aldrei gefið upp vonina um að Madeleine væri á lífi. Þessar nýjustu upplýsingar væru þær markverðustu á þeim þrettán árum sem liðin eru frá hvarfinu.