Við rót­gróna í­búða­götu stendur reisu­legt Sig­valda­hús: „Innan veggja er þó ekki alveg hefð­bundið heimilis­hald“

Björk Eiðs­dóttir, ristjóri helgar­blaðs Frétta­blaðsins, skrifar um Mána­berg í grein í Frétta­blaðinu í dag.

„Við rót­gróna í­búða­götu í bænum stendur reisu­legt Sig­valda­hús og virðist að utan ekki ó­líkt öðrum fjöl­skyldu­húsum í borginni. Innan veggja er þó ekki alveg hefð­bundið heimilis­hald. Húsið, sem kallað er Mána­berg, er úr­ræði Barna­verndar Reykja­víkur fyrir börn á aldrinum 0 til 12 ára sem eiga ekki í önnur hús að venda. Á­stæður dvalar þessara barna eru erfiðar að­stæður heima fyrir og getur dvölin verið allt frá einum sólar­hring upp í nokkra mánuði. Allt að sjö börn dvelja í húsinu hverju sinni og að dvöl lokinni fara þau heim til sín, til ættingja eða í fóstur, allt eftir að­stæðum hverju sinni,“ skrifar Björk.

„Í full­komnum heimi væri slíkt heimili ekki til – þess væri ekki þörf – en í okkar ó­full­komna en á­gæta heimi finnast slík úr­ræði um allt. Þú, lesandi, hefur heyrt um þau, lesið eða séð í kvik­myndum en færri hafa upp­lifað þau á eigin skinni. Undan­farinn ára­tug hefur Mána­berg þó haft á­kveðna sér­stöðu, því að í um helmingi til­vika dvelur for­eldri þar á­samt barni sínu eða börnum í svo­kallaðri greiningar- og leið­beiningar­vistun sem stendur al­mennt í sex til átta vikur. For­eldrið fær þar stuðning til að gera betur, það fær fræðslu í upp­eldis­færni og fjöl­skyldunni er hjálpað við að efla tengslin sín á milli. Þannig er fjöl­skyldum skilað aftur út í sam­fé­lagið sem betri ein­stak­lingum og þéttari einingu,“ skrifar Björk.

Í helgar­blaði Frétta­blaðsins um liðna helgi mátti lesa sögu Ás­dísar Lax­dal Jóhannes­dóttur sem dvaldi í Mána­bergi á­samt ungum sonum sínum í fjóra mánuði.

„Saga Ás­dísar er lituð fíkn og sorgum, hún er saga konu sem átt hefur erfitt með að fóta sig í lífinu, en líka saga móður sem elskar börnin sín og vill gera betur. Með dvöl í Mána­bergi fékk hún tæki­færi til þess. Hún fékk hand­leiðslu, að­stoð og verk­færi til að verða hæfari manneskja og þannig hæfari móðir,“ skrifar Björk.

„Árið 2021 bárust Barna­vernd 4.954 til­kynningar. Árið 2021 dvöldu 83 ein­staklingar í Mána­bergi og er bæði starf­semi og hús­næði komið að þol­mörkum. Undir­búningur að byggingu nýs hús­næðis sem betur hentar fyrir starf­semina er hafinn en sam­kvæmt árs­skýrslu síðasta árs fór kostnaður Barna­verndar 487 milljónir yfir á­ætlun. Það er því ljóst að á brattann verður að sækja með slíkar fram­kvæmdir en megin­skýring frá­vika í rekstri Barna­verndar er kostnaður sem hlýst af vistun barna utan heimilis í ýmiss konar úr­ræðum.

Það er því bein­línis þjóð­hags­lega hag­kvæmt að verja meiri fjár­munum í þennan mála­flokk og skila ein­stak­lingum hæfari út í sam­fé­lagið, með sterkari stoðir og til­búnari í á­skoranir lífsins,“ skrifar Björk að lokum.