„Við höf­um ekk­ert fyr­ir okk­ur annað en orð Svía nokk­urs sem býr í Sviss“

Kári Stefáns­son segist vera of­boðs­lega hræddur um að Richard Bergst­röm, verk­efna­stjóra um bólu­setningar á Ís­landi, Sví­þjóð og Noregi innan ESB, hafi ekki eins mikið til síns máls að bera og hann telji sjálfur. Þetta kemur fram í við­tali mbl.is við Kára.

Til­efnið eru um­mæli Bergst­röm í kvöld­fréttum RÚV í gær­kvöldi. Þar segir hann það raun­hæft mark­mið að Ís­land klári að bólu­setja í sumar, á sama tíma og ná­granna­þjóðirnar.

„Hann seg­ir að við fáum 2.735 skammta frá Moderna í mars, 20 þúsund frá Pfizer, og 68 þúsund frá AstraZene­ca. Sko, í fyrsta lagi hef­ur AstraZene­ca ekki gefið út nein­ar yf­ir­­lýs­ing­ar um hve­nær þau komi til með að senda bólu­efni og jafn­vel þó að þetta væri allt sam­an rétt þá væri þetta býsna lít­ill hundraðs­hluti af sam­­fé­lag­inu sem verður bólu­­sett­ur með þessu bólu­efni. Þannig að allt sem á eft­ir kem­ur er enn þá í lausu lofti og við höf­um ekk­ert fyr­ir okk­ur annað en orð Svía nokk­urs sem býr í Sviss,“ seg­ir Kári.

Hann segist vona að þetta sé rétt hjá Bergst­röm, en að það sé erfitt að taka þessu sem stað­festingu á nokkrum sköpuðum hlut. Óska­staðan væri að bólu­setja þjóðina á fyrsta árs­fjórðungi, svo hægt væri að hefja hér kraft­mikla ferða­þjónustu í sumar.

„Ís­lenskt sam­­fé­lag hef­ur ekk­ert í hönd­un­um sem ætti að láta okk­ur líða eins og við vit­um að það verði búið að bólu­­setja hér alla um mitt sum­ar. Það vant­ar all­ar dag­­setn­ing­ar og magn sem pass­ar við dag­­setn­ing­ar á því hve­nær við fáum bólu­efni. Þetta er allt í lausu lofti,“ seg­ir Kári.

Ó­tækt ef upp­lýsingar liggja ekki hjá stjórn­völdum

Hann tekur fram að sér finnist það mjög ó­þægi­legt en að hann voni að Svíinn hafi rétt fyrir sér. Hann segir eðli­legt að ís­lensk stjórn­völd hafi á­kveðið að slást í för með Evrópu­sam­bandinu í málinu.

„Það sem í mín­um huga er slæmt er að það lít­ur út fyr­ir að Evr­ópu­­sam­bandið hafi verið klaufa­­legt í sín­um samn­ing­um, að minnsta kosti á Evr­ópu­­sam­bandið mjög erfitt með að veita stjórn­völd­um upp­­­lýs­ing­ar um hve­nær bólu­efni komi,“ segir Kári.

„Hér er maður nokk­ur ó­tengd­ur okk­ur sitj­andi úti í Sviss sem seg­ir okk­ur að svona muni þetta ger­ast. Það er gjör­­sam­­lega fyr­ir neðan all­ar hell­ur ef við höf­um samið við Evr­ópu­­sam­bandið að ef upp­­­lýs­ing­arn­ar liggja fyr­ir og stað­fest­ing á því að bólu­efni komi nægi­­lega fljótt að þær upp­­­lýs­ing­ar skuli ekki liggja hjá stjórn­völd­um,“ seg­ir hann.