„Við getum gert miklu betur“

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi VG segir borgaryfirvöld geta gert miklu betur í að moka snjó. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

„Ég er mjög pirruð, ég veit að allir eru að reyna að gera sitt besta en við getum gert miklu betur,“ segir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG í minnihluta borgarstjórnar.

Hún segir að Reykjavíkurborg ætti að taka alfarið yfir snjómokstur og hætta því að reiða sig á verktaka.

Líf bendir á að snjómokstur hafi kostað Reykjavíkurborg 1,4 milljarða síðasta vetur.

„Þá spyr maður: Eru þessir peningar að skila okkur betri árangri?“

Fréttin í heild sinni á vef Fréttablaðsins.