„Við erum í vondum málum í þessari í­þrótt“ – Í­þróttin sem ís­lensk börn mega í raun ekki stunda

„Þetta er ný­leg á­bending sem vekur á­kveðna at­hygli á því að við erum í vondum málum í þessari í­þrótt,“ segir Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata.

Hann vakti at­hygli á einu á­kveðnu máli í ó­undir­búnum fyrir­spurnar­tíma á Al­þingi í gær.

„Í starfi okkar þing­manna fáum við oft á­bendingar um stór mál og smá. Nú er það svo að ég hef verið að æfa bog­fimi undan­farin ár sem er sér­stak­lega góð í­þrótt fyrir streitu­valdandi starf eins og þing­mennskan er,“ sagði Björn Leví í fyrir­spurn sinni og bætti við að því miður tæki þing­mennskan of mikinn tíma frá því að geta stundað í­þróttina nógu mikið.

„Mér barst ein­mitt á­bending frá bog­fimi­hreyfingunni um að í vopna­lögum standi að barn yngra en 16 ára megi ekki selja eða af­henda örva­boga með meiri tog­krafti en 7 kg eða odd­hvassar örvar. Nú er það svo að á al­þjóð­legum mótum eru kannski 13 ára ung­menni að byrja að keppa á al­þjóða­vísu. Þar eru jafn­vel notaðir 15–25 kílóa bogar sem gerir það að verkum að miðað við lögin okkar geta ís­lensk ung­menni í raun ekki æft eða keppt á Ís­landi. Í raun geta þau ekki keppt, æft eða neitt svo­leiðis fyrir er­lend mót, hvað þá ís­lensk,“ sagði Björn Leví og bætti við að samt værum við með Ís­lands­met í flokki undir 16 ára.

„Þetta er ný­leg á­bending sem vekur á­kveðna at­hygli á því að við erum í vondum málum í þessari í­þrótt. Mig langaði til að eiga orð við hæstv. ráð­herra um þetta vanda­mál, að ís­lensk ung­menni geti ekki tekið þátt í þessari annars gömlu og göfugu í­þrótt og ég leita eftir stuðningi ráð­herra við að laga þetta vanda­mál.“

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra tók vel í fyrir­spurn Björns og sagðist raunar hafa átt í sam­skiptum við Bog­fimi­fé­lagið vegna þessa.

„Það er auð­vitað mjög eðli­legt að ung­lingarnir okkar standi jafn­fætis jafn­öldrum sínum í löndunum í kringum okkur. Vopna­lögin eiga að sjálf­sögðu ekki að koma í veg fyrir í­þrótta­æfingar ung­menna né keppni í bog­fimi,“ sagði Ás­laug og bætti við að gaman væri að heyra um vel­gengni unga fólksins okkar í þessari í­þrótt.

„En það þyrfti auð­vitað líka að sam­ræma þetta við leyfi til skot­vopna­í­þrótta og kannski skoða það sér­stak­lega og hvort ekki sé hægt að hafa þessar undan­þágur fyrir keppni og æfingar sam­ræmdar. Það er þörf á heildar­endur­skoðun á vopna­lögunum, bæði þarf að inn­leiða ýmsar ESB- og Schen­gen-gerðir sem eftir er að gera og sú vinna er í gangi í ráðu­neytinu. Þannig að ég fagna þessum breytingum og tel mikil­vægt að skoða þessi sjónar­mið og hvort ekki sé hægt að verða við þeim með breytingunum.“