„Hér erum við beinlínis í ástandi sem ég get ekki líkt við neitt annað en stríðsástand þar sem við erum með þennan vágest, þennan óvin að utan og þurfum um leið að bregðast við ákvörðunum annarra ríkja, í raun og veru jafn óðum.“ Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í Kastljósi nú í kvöld um ástandið sem nú er hér á landi vegna COVID-19 faraldursins sem er ofarlega ef ekki efst í hugum landsmanna um þessar mundir.
Hún sagði faraldurinn skapa flóknar aðstæður fyrir efnahagslíf heimsins en yfirvöld hér á landi hafi verið undirbúin með góðum fyrirvara. Þannig hafi verið búið að gera ráðstafanir á sjúkrahúsum, kanna birgðastöðu og gera viðbragðsáætlanir.
„Við erum að hætta að takst í hendur og faðmast, sem er erfitt,“ sagði Katrín. „Hlutirnir breytast daglega en við búum að því að hafa mikla reynslu af því að takast á við erfiðar aðstæður.“
Sagði hún einnig að ferðabönn í Evrópu og Bandaríkjunum væru pólitísks eðlis fremur en lýðheilsulegs, íslensk stjórnvöld mótmæltu þeim aðgerðum.