„Við erum bara manneskjur sem höfum upplifað ofbeldi“

Prestarnir Karen Lind Ólafsdóttur og Sunna Dóra Möller segja það hafa verið ofboðslegt áfall að hafa áttað sig á því að vinnuumhverfi sitt í Digra-og Hjallakirkju hafi verið óheilbrigt. Viðtal við þær má lesa á vef Fréttablaðsins.

Karen Lind er ein sex kvenna sem stigu fram í lok síðasta árs og á­sökuðu séra Gunnar Sigur­jóns­son, þá sóknar­prest við Digra­nes- og Hjalla­presta­kall, um kyn­ferðis­lega á­reitni, kyn­bundið of­beldi og ein­elti.

Að mati Sunnu Dóru er biskup að taka stórt skref í að lýsa yfir stuðningi við þol­endur of­beldis með því að víkja Gunnari úr starfi.

„Í raun og veru, við sem prestar gátum farið og fengið þar skjól. Við erum bara mann­eskjur sem höfum upp­lifað of­beldi og fengum þetta skjól og á okkur var hlustað. Það er bara ó­trú­leg dýr­mætt,“ segir Sunna Dóra.

Viðtalið við þær stöllur má lesa í heild sinni á vef Fréttablaðsins.