„Við, fólkið í landinu, ætlum ekki að selja eign okkar í Íslandsbanka. Við búum í lýðræðisríki þar sem stjórnvöldum ber að stjórna í takt við vilja lýðsins, almennings í landinu.“
Þetta segir á heimasíðunni Vidfolkid.is, en þar er hægt að leggja nafn sitt við undirskriftasöfnun þess efnis að eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka verði ekki seldur.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í fréttum RÚV í síðustu viku að undirbúningur fyrir sölu á hlut ríkisins í bankanum væri á áætlun og að líklega yrði hægt að auglýsa hlutinn til sölu í byrjun júnímánaðar, eftir rétt rúman mánuð.
Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun að selja hlut ríkisins í bankanum. Sumir telja að nú sé rétti tímapunkturinn á meðan aðrir hafa bent á að óheppilegt sé að hefja söluna núna. Guðrún Johnson, lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, benti til dæmis á það í janúar að stór hluti lánabókar Íslandsbanka sé nú í frystingu vegna ástandsins í efnahagslífinu.
„Það hefur komið fram aftur og aftur í könnunum að mikill meirihluti almennings vill ekki selja hlut sinn í Íslandsbanka. Enginn hefur sett þessa kröfu fram nema hagsmunasamtök hinna fáu, ríkustu fjármagnseigendanna og allra stærstu eigenda allra stærstu fyrirtækjanna. Við, fólkið í landinu, eigum hins vegar bankann og ætlum ekki að selja hann. Og í lýðræðisríki erum það við sem ráðum,“ segir á vefsíðunni.
Fjölmargir þekktir landsmenn hafa lagt nafn sitt við undirskriftasöfnunina ef marka má vefsíðuna. Í þeim hópi eru til dæmis Elísabet Ronaldsdóttir klippari, Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi skattstjóri, Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, Katrín Baldursdóttir stjórnmálafræðingur, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði og tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson.