„Eftir nokkrar sveiflur á fylgi stjórnmálaflokka síðustu vikur og aukinn stuðning við ríkisstjórnina þá gefa nýjar niðurstöður úr könnun MMR til kynna að fylgi flokkanna sé almennt að færast í líkt horf og var áður en áhrifa Covid-19 faraldursins gætti að fullu hér á landi,“ segir í tilkynningu frá MMR sem birtur niðurstöður nýrrar könnunar sinnar um fylgi stjórnmálaflokkanna. Flokkarnir sem mynda ríkisstjórn tapa allir fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 51,1% en var 56,2% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að dragast saman. Þá er fylgi Vinstri grænna komið niður í aðeins 10,4%. Bæði Píratar og Samfylking mælast stærri en flokkur Katrínar Jakobsdóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Þá bætir Viðreisn við sig á meðan Framsóknarmenn og Miðflokkurinn lækka. Þá fær Sósíalistaflokkur Íslands 5,6% en var áður með 3,4%. Flokkur fólksins næði ekki á þing.