Vesturbæingar ræða ítrekuð dyraöt ungmenna: „Það er enginn Hreinn hér“

Töluverð umræða hefur skapast í íbúahópi Vesturbæjarins á Facebook vegna dyraats ungmenna sem virðist vera komið í tísku aftur.

„Um þessar mundir finnst mér óþarflega mikið um dyrabjölluat hjá mér að degi til. Eru einhverjir aðrir að lenda í því sama?,“ segir Ingunn Björnsdóttir sem byrjar umræðuna.

Óhætt er að segja að margir taki undir þetta og hafa fleiri en Ingunn lent í því að koma til dyra án þess að nokkur sé á svæðinu. Ingunn segist velta fyrir sér hvort um sé að ræða „fyndna“ krakka og ef svo er að foreldrar þeirra ræði við þá.

„Alltaf hér við Vesturbæjarskóla - greinilega aðal grínið,“ segir í einni athugasemd á meðan bætt er við í annarri athugasemd: „Það eru litlir gaurar á Aflagranda sem taka syrpu öðru hvoru.“

Sumum finnst skemmtilegt að saklausir hrekkir sem þessir séu komnir í tísku aftur. „Gaman að heyra að dyrabjölluat sé komið aftur,“ segir einn íbúi og annar tekur undir. „Sammála, mér finnst það alltaf soldið fyndið!“

Þá rifjar einn upp gömul bernskubresk sem hefur komið mörgum til að brosa.

„Þetta var voða spennandi þegar ég var strákur fyrir sirka 65 árum síðan og dyrasímar voru að breiðast út í fjölbýlishúsum. Þá hringdi maður á einhverja bjöllu og þegar svarað var spurðum við: „Er Hreinn heima?“ Svo ef heppnin var með var svarað: „Það er enginn Hreinn hér" sem gaf auðvitað tækifæri til að hvetja fólkið til að fara í bað og svo hljóp maður burt eins og fætur toguðu.“