„Veru­legt á­hyggju­efni“ að borgar­full­trúar beri svo lítið skyn­bragð á fjár­mál

„Það að borgar­full­trúar meiri­hlutans skuli bera svo lítið skyn­bragð á fjár­mál að þeir staldri ekki einu sinni við þegar allt fer í­trekað úr böndum er veru­legt á­hyggju­efni fyrir skatt­greið­endur í Reykja­vík.“

Þetta kemur fram í leiðara Morgun­blaðsins í dag sem eins og venjan er, er birtur nafn­laus en ætla má að þar haldi rit­stjórinn Davíð Odds­son á penna. Þar eru tekin tvö dæmi um leik­skóla á vegum borgarinnar þar sem keyrt hefur verið fram­úr á­ætlun vegna kostnaðar.

Sjá einnig: Dagur ver kaupin á Adam & Evu: „Morgunblaðinu tekst að hafa tvær fyrirsagnir rangar“ – Eyþór svarar

Nefnir Davíð kostnaðar­á­ætlun vegna leik­skóla að Safa­mýri 5. Segir Davíð að gert hafi verið ráð fyrir að það myndi kosta 420 milljónir og efri vik­mörk um hálfur milljarður.

„Í liðinni viku var málið tekið fyrir aftur í borgar­ráði og þá var kynnt ný kostnaðar­á­ætlun, kostnaðar­á­ætlun II, og þá hafði hún hækkað í 752 milljónir króna, en ó­vissan eftir sem áður sögð 15%. Þetta þýðir að hækkun frá fyrstu kostnaðar­á­ætlun, þeirri sem á­kvörðun um að ráðast í verk­efnið byggðist í raun á, er 79%, sem þýðir með öðrum orðum að sú kostnaðar­á­ætlun var al­ger­lega ó­not­hæf.“

Meiri­hlutinn engan bil­bug á sér finna

Davíð segir meiiri­hlutann ekki láta neinn bil­bug á sér finna. „Enda kominn í slíkar ó­göngur með leik­skóla­rými eftir lang­varandi van­rækslu að hann telur sig ef­laust ekki geta hætt við þó að á­ætlanir reynist hald­lausar og kostnaður fari úr böndum.“

Þá snýr Davíð sér næst að hús­næðinu sem áður hýsti Adam og Evu á Klepps­vegi. Kostnaðar­á­ætlun upp á 623 milljónir hafi verið gerð en nú hljóði hún upp á 989 milljónir.

„Þessi tvö dæmi um sóun við byggingu leik­skóla hjá borginni eru því miður ekki ein­stök. Og það þarf ekki að koma á ó­vart þó að bragginn al­ræmdi hafi skotið upp kollinum í þessari um­ræðu. Hér er um það að ræða að í tveimur fyrir­huguðum leik­skólum er kostnaðar­á­ætlun þegar komin nær 700 milljónum fram úr þeim á­ætlunum sem borgin byggði á­kvörðun sína á. Þetta er gríðar­mikið fé, ekki síst fyrir borg sem komin er í al­gerar ó­göngur með fjár­mál sín.“