Verslun Þórgnýs og Helga var sett á svartan lista án útskýringar

„Upplifunin er þannig að kortafyrirtækin séu saksóknari, dómari og böðull gagnvart okkur,“ segir Þórgnýr Thoroddsen í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

Þórgnýr stofnaði netverslunina Bjórland ásamt Helga Þóri Sveinssyni í ársbyrjun 2020 og var markmiðið fyrst að selja bjór til veitingastaða. Það breyttist með kórónuveirufaraldrinum og ákváðu þeir í kjölfarið að byrja að selja beint til neytenda.

Að undanförnu hefur verslunin ekki getað tekið við kreditkortagreiðslum eftir að hún var sett á svartan lista af kreditkortafyrirtæki hér á landi.

Þórgnýr rekur þetta til þeirrar staðreyndar að Bjórland starfar á Íslandi en ekki í skjóli annarra landa eins.

„Íslenskt kortafyrirtæki sem við áttum í viðskiptum við sagði upp samningnum fyrirvaralaust síðasta haust og erfitt reyndist að fá nánari útskýringar. Það sama gerðist með erlent kortafyrirtæki sem bar fyrir sig að því hefði borist kvörtun frá íslensku kortafyrirtæki og að við værum á svörtum lista,“ segir hann og bætir við að upplifunin sé þannig að kortafyrirtækin séu saksóknari, dómari og böðull gagnvart fyrirtækinu.

„Upplifunin er þannig að kortafyrirtækin séu saksóknari, dómari og böðull gagnvart okkur. Það er rosalega skrýtið að þau geti heft viðskiptafrelsi okkar án dóms og laga,“ segir Þórgnýr sem nefnir þó að viðskiptavinir Bjórlands hafi greitt með AUR, Netgíró og millifærslum fyrir þjónustuna og gert það með glöðu geði.

Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.