Verk­amaður hjá Össuri segir verk­bann vera geð­veiki: „Fólk sem lifir bók­staf­lega frá launa­seðli til laun­seðils“

Ian Mcdonald, verka­maður hjá Össuri og fé­lags­maður Eflingar, telur að yfir­vofandi verk­bann Sam­taka at­vinnu­lífsins muni hafa öfug­verkandi á­hrif. At­kvæða­greiðslu um verk­bannið lýkur á morgun klukkan 16.
„Mín per­sónu­lega skoðun á því er að hug­myndin um verk­bann er geð­veiki. Ég veit að verk­bönn hafa verið notuð í for­tíðinni en aldrei af þeirri stærðar­gráðu sem nú er lagt til, að senda tuttugu þúsund fólk heim til sín launa­laust,“ segir hann. „Þegar talað er um að senda svo mikið af vinnu­fólki heim til sín þá er í raun verið að tala um að setja ís­lenska efna­haginn á hliðina,“ segir Ian í sam­tali við Frétta­blaðið.

Ian telur að á­hrifin gætu orðið sér­stak­lega skæð þar sem fé­lags­menn Eflingar eiga í hlut.

„Við erum að tala um fólk sem vinnur á sjúkra­húsum, strætó­bíl­stjóra, þrifnaðar­starfs­fólk og svo fram­vegis. Þetta eru grund­vallar­störf sem verða ó­unnin.“

Ian hefur búið á Ís­landi í rúm­lega sjö ár og hefur verið virkur í starfi Eflingar í um á­tján mánuði. Hann segir and­rúms­loftið meðal sam­starfs­fólks síns hjá Össurri ein­kennast frekar af pirringi en reiði.

„Fólk skilur vel hvað er að gerast en það er þó aug­ljós­lega pirringur því að fólk vill fá launa­hækkun sem það hefur ekki fengið,“ segir hann. „Frá því að þetta ferli hófst þá höfum við hjá Eflingu verið að reyna að berjast fyrir fólki sem lifir bók­staf­lega frá launa­seðli til laun­seðils. Fólk er alltaf á dansa á línunni um það hvort það geti lifað af eða ekki. Með því að hóta verk­banni þá er verið að ógna þessum launa­seðli. Fólk er skiljan­lega skelkað og það er mikið um spurningar.“

Hægt er að lesa við­tal Frétta­blaðsins við Ian hér.