„Nú er verið að þvo listaverkið sem var gert um helgina af veggnum sem hefur verið útkrotaður árum saman.“
Þetta segir Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og formaður Stjórnarskrárfélagsins, á Facebook-síðu sinni.
Þar birtir hún mynd af vöskum mönnum vera að þvo vegginn sem stendur við hlið sjávarútvegsráðuneytisins við Skúlagötu. Þar stóð einfaldlega: „Hvar er nýja stjórnarskráin?“ en svo virðist vera sem skilaboðin hafi farið fyrir brjóstið á einhverjum. Veltir Katrín því fyrir sér hvort þetta sé spurningin sem ekki megi spyrja.
Katrín vekur athygli á því að umræddur veggur hafi verið útkrotaður árum saman án þess að nokkuð hafi verið gert í því.
Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, segir að það sé greinilega góð leið til að losna við veggjakrot að skrifa þessa spurningu yfir það.
Vegglistaverkið hafði ekki fengið að standa óáreitt lengi en það var málað um helgina.
„Hann hefur verið útkrotaður árum saman en spurningin "Hvar er nýja stjórnarskráin?" fékk að vera á honum í tæpa 2 sólarhringa áður en hreinsisveit yfirvalda var ræst út. Þeir geta þvegið þetta af veggnum, en spurningin verður vonandi aldrei þvegin úr vitund þjóðarinnar,“ segir á Facebook-síðu Stjórnarskrárfélagsins.
Athygli vekur að þvottamennirnir höfðu sig á brott eftir að hafa þurrkað út fyrsta orðið í spurningunni. Eftir stendur því: Er nýja stjórnarskráin?