Forsvarsmenn Íslandshótela ætla ekki að hleypa verkfallsvörðum Eflingar á hótel sín, en að sögn hótelsins er ástæðan fyrir því hótanir þeirra í garð starfsmanna annarra stéttarfélaga sem eru ekki í verkföllum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá hótelinu, en þar segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin eftir hádegi í dag.
„Verkfallsverðir Eflingar, sem mættu á hótel Íslandshótela eftir hádegi í dag, hófu svo að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem voru við störf, sem og yfirmönnum sem löglega voru að sinna sinni vinnu, aðgerðum ef þeir leggðu ekki niður störf. Rétt er að ítreka og undistrika að starfsmenn annarra stéttarfélaga eru sannarlega ekki í verkfalli og voru með engu móti að ganga í störf Eflingarfólks. Efling hefur með þessu farið langt yfir eðlileg mörk og í ljósi aðgerðanna hafa forsvarsmenn Íslandshótela nú ákveðið að taka fyrir frekari heimsóknir fulltrúa Eflingar,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að þessi ákvörðun verði endurskoðuð ef breyting verði á afstöðu Eflingar um „eðlilega og sanngjarna verkfallsvörslu af þeirra hálfu“.
Íslandshótel höfðu samþykkt að leyfa tveimur aðilum frá félaginu að sinna verkfallsvörslu á hótelinu. Í tilkynningunni segir að Efling hafi viljað að stór hópur Eflingarfélaga myndu fá fullan aðgang að hótelunum, en því hafi verið hafnað.
Ttrúnaðarmaður á vegum Eflingar, Örvar Þór Guðmundsson, tjáir mbl.is að verkfallsbrot hafi átt sér stað.
Þrjár lögreglubifreiðar komu fljótlega á vettvang og voru dyr hótelsins opnaðar með lögregluvaldi við mikil fagnaðarlæti Eflingarfólks.