Formannakosning er á næsta leiti. Nýr formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður kosinn á aðalfundi félagsins eftir helgi, þann 16.júní. Í félaginu eru yfir tólf þúsund félagar og er þetta eitt stærsta félag landsins.
Frambjóðendur til formanns eru þrír og mættu þeir saman í þættinum 21 hjá Lindu Blöndal í kvöld, fimmtudag. Þetta eru þau Ingibjörg H. Sverrisdóttir, ferðaráðgjafi, Borgþór Kærnested, rithöfundur og þýðandi og fyrrum fjölmiðlamaður erlendir og hérlendis og fyrrverandi Framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara og Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur.
Rætt er um víðtækar skerðingar á tekjum og kjörum eldri borgara, hvað þarf að gera til að ydda baráttuna, dómsmálið sem höfðað er gegn ríkinu vegna skerðinga og hvað framtíðin ber í skauti sér. Í máli frambjóðandanna kemur m.a. fram að verkalýðshreyfingin verði í meira mæli að snúast á sveif með félagi eldri borgara.