Verkafólk hækkaði um 65 þúsund krónur en þingmenn um 184 þúsund krónur

„Þingfararkaupið í dag er 1.285.411 krónur og það er mikilvægt að þingmenn átti sig á stöðunni sem lágtekjufólk býr við þegar það tjáir sig!“

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í pistli á Facebook-síðu sinni.

Þar gerði Vilhjálmur orð Guðrúnar Hafsteinsdóttur, nýkjörins þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í Silfrinu í gær að umtalsefni. Í þættinum sagði hún að launahækkanir á Íslandi á liðnum árum væru án fordæma á Vesturlöndum – afleiðingarnar væru hækkun vaxta og aukin verðbólgu eins og nú sést.

„Það er rétt að benda nýkjörnum þingmanni Guðrúnu Hafsteinsdóttur á það sem hún kallar „fordæmalausar launahækkanir“ að allir launataxtar verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði hafa hækkað um 65.000 kr. á samningstíma Lífskjarasamningsins, eða frá 3. apríl 2019.“

Í pistli sínum bendir Vilhjálmur á að sama tíma hafi þingfararkaup hækkað um 184.217, eða sem nemur 119.217 krónum meira en launataxtar verkafólks.

„Rétt er líka að benda á að um áramótin kemur 25.000 hækkun á launatöxtum verkafólks en hins vegar stefnir í að hækkun á þingfararkaupi muni nema uppundir 100.000 krónum.

Hæsti launataxti verkafólks sem er 17 launaflokkur nemur í dag 365.680 krónum og ljóst að fólk á þessum töxtum nær hvorki að framfleyta sér eða sinni fjölskyldu, né halda mannlegri reisn.“

Eins og fram kemur hér fremst bendir Vilhjálmur á að þingfararkaupið í dag sé 1.285 þúsund krónur. Mikilvægt sé að þingmenn átti sig á þeirri stöðu sem lágtekjufólk býr við áður en það tjáir sig.