Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu, segir að svo gæti farið að minnihlutastjórn Vinstri grænna og Framsóknar gæti tekið við. Þetta kemur fram í fréttaskýringu hans í Morgunblaðinu í dag.
Ólga er innan ríkisstjórnarinnar vegna útboðsins á hlut ríkisins í Íslandsbanka á dögunum og gæti ríkisstjórnarsamstarfið verið í hættu. Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segir að allskonar samræður hafi átt sér stað.
Í fréttaskýringu Andrésar í dag segir:
„Um lyktir Bankasýslumálsins vita menn svo sem lítið, en það segir sína sögu að innan Vinstri grænna og Framsóknar hafa sumir rætt um það, að reynist niðurstaða ríkisendurskoðanda fjármálaráðherra óhagstæð, sé núverandi samstarfi sjálfhætt. Hefur í því samhengi verið rætt um að við geti tekið minnihlutastjórn Vinstri grænna og Framsóknar með hlutleysi Samfylkingar og Pírata og þingkosningum flýtt fram á vor.“
Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, var spurð út í það af mbl.is í dag hvort einhver úr ríkisstjórn hefði nálgast flokkinn varðandi mögulegt ríkisstjórnarsamstarf.
Helga Vala virðist ekki hafa svarað spurningunni beint en sagði þó að „allskonar samtöl“ væru í gangi.