Bæjarstjórn Akureyrar hefur hvatt ríkisstjórnina og Alþingi til að kanna og taka afstöðu til styttingu Þjóðvegar 1 milli Reykjavíkur og Akureyrar. Teknir hafa verið saman möguleikar sem myndu stytta leiðina um allt að 80 kílómetrar en í dag er vegalengdin um það bil 388 kílómetrar.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag en tekið er fram að ekkert sé í samgönguáætlun um málið.
Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir að hægt væri að spara umtalsverða fjármuni með styttingu vegarins. Sjálf framkvæmdin væri vissulega dýr en yrði fljót að borga sig upp.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að tvær leiðir hafi oftast verið nefndar, í Húnavatnssýslum og Skagafirði, sem myndi stytta þjóðveginn um 20 kílómetra. Eðli málsins samkvæmt eru ekki allir hrifnir af hugmyndinni því ef þetta yrði að veruleika yrði þjóðvegurinn færður út fyrir Blönduós og Varmahlíð.
Gunnar segir að fjárhagslegur ávinningur sé ekki eini kosturinn því styttri akstursvegalengd myndi þýða minni útblástur og færri slys.
Akureyringar vilja ekki einungis kanna styttingu í Húnavatnssýslum og Skagafirði því þeir vilja einnig láta kanna veg um Stórasand. Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, viðraði þá hugmynd fyrir um 20 árum en um væri að ræða hálendisveg sem myndi stytta þjóðveginn um 80 kílómetra. Ef þetta yrði að veruleika myndi það taka ökumenn rúmlega þrjár og hálfa klukkustund að keyra á milli.
Gunnar segir að með þessari leið yrði vegurinn kominn í talsverða hæð, ekki ósvipaða og er á veginum milli Akureyrar og Egilsstaða. Að sögn Gunnars hefur það þó ekki verið mikið vandamál.