Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson segir að Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sé heitur fyrir því að fara í prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
„Sagt er að Halldór Benjamín Þorbergsson, talsmaður Samtaka atvinnulífsins um árabil, sé að yfirgefa þá skútu eftir kurr um borð,“ segir í frétt á vef Eiríks, Eirikurjonsson.is.
„Í framhaldinu stefni hann að því ásamt pólitískum bakhjörlum sínum að fara í oddvitaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni eftir áramót, rúlla því upp og verða borgarstjóri – Benjamín borgarstjóri.“
Hvort af þessu verði skal ósagt látið en þó hefur því verið haldið fram að Halldór Benjamín eigi bjarta framtíð innan Sjálfstæðisflokksins – kjósi hann á að annað borð að láta að sér kveða á þeim vettvangi.
Ekki þarf að leita lengra aftur en til ársins 2019 að Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, spáði því að Halldór Benjamín yrði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. „Næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Lásuð það fyrst hér,“ sagði Björn Ingi á Facebook og birti mynd af Halldóri.
Halldór hefur verið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2016 en hann er hagfræðingur að mennt og með MBA-gráðu frá Oxford-háskóla í Bretlandi. Hann starfaði þar áður hjá Icelandair Group.