Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar eru í fullum gangi þessa dagana en ekki er búist við því að niðurstaða komist í þær fyrr en í næstu viku í fyrsta lagi.
Meðal þess sem forystumenn flokkanna ræða eru stefnumál þeirra, áherslur, málamiðlanir og verkaskipting – svo sem hver verður borgarstjóri.
Hingað til hefur talið einna helst borist að Einar Þorsteinssyni, oddvita Framsóknarflokksins, og Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar og borgarstjóra síðustu ára. Hafa sumir látið að því liggja að þeir muni skipta kjörtímabilinu á milli sín. Annar möguleiki er þó sagður vera í stöðunni og hann er sá að Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, setjist í stól borgarstjóra.
Orðið á götunni á DV gerir því skóna að Dóra muni mögulega gera kröfu um að gegna starfinu. Þannig er bent á að Dóra hafi sjálf bent á að Píratar væru eini flokkurinn í gamla meirihlutasamstarfinu sem bætti við sig fylgi í kosningunum og því sé flokkurinn sigurreifur og Dóra full sjálfstrausts.