Verður Brynjar áfram á þingi eftir allt saman?

Fast er sótt að Brynjari Níelssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að gefa kost á sér til áframhaldandi setu á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Brynjar endaði í 5. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík um liðna helgi en hann sóttist eftir 2. sætinu.

Niðurstaðan varð Brynjari mikil vonbrigði og sagðist hann trúa því að Sjálfstæðisflokknum myndi vegna vel í komandi kosningum. „Ég kveð því stjórnmálin sáttur,“ sagði Brynjar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á ágætu flugi í skoðanakönnunum að undanförnu og eru góðar líkur á að Brynjar komist á þing snúist honum hugur. Það er að minnsta kosti fast sótt að honum.

Stjórn Heimdallar skoraði á Brynjar í gær að endurskoða ákvörðun sína. „Brynjar hefur verið einn fremsti málsvari einstaklingsfrelsis hér á landi og nú sem aldrei fyrr er þörf fyrir hugrakka verjendur frelsisins,“ sagði í ályktun Heimdallar.

Diljá Mist Einarsdóttir, sem náði góðum árangri í prófkjöri flokksins um helgina, tók undir þessa áskorun og deildi henni á Facebook-síðu sinni með orðunum: „Tek undir þessa áskorun á Brynjar Níelsson.“

Óskar Magnússon, lögmaður og fyrrverandi útgefandi Árvakurs, útgáfufélags Árvakurs, tók undir þetta og sagði: „Tek undir áskoranir á Brynjar. Getur ekki eitthvert ykkar sem kunnið sett í gang -Áfram Brynjar áfram - síðu á fb? Ég skal svo snúa upp á hendina á honum.“