Verðum mögu­lega 7-10 ár að vinna okkur úr kreppunni

Það gæti tekið þjóðar­búið allt að tíu ár að vinna upp fram­leiðslutapið vegna kórónu­veirufar­aldursins sem leikið hefur efna­hag landsins grátt undan­farna mánuði. Markaðurinn í Frétta­blaðinu fjallar um þetta í dag og vísar í sviðs­mynda­greiningu Sam­taka at­vinnu­lífsins og Við­skipta­ráðs Ís­lands.

Þar kemur fram að lands­fram­leiðsla Ís­lands gæti dregist saman um 13 prósent á þessu ári. Ef sú spá rætist og hag­vöxtur verður undir meðal­lagi næstu ár gæti tekið sjö ár að vinna upp fram­leiðslutapið. Svartasta spáin gerir ráð fyrir 10 árum en það er miðað við 2 prósenta ár­legan hag­vöxt.

Spáin er háð ýmsum breytum, til dæmis fjölda ferða­manna til landsins á næstu misserum. Bjart­sýnasta spáin gerir ráð fyrir 65% fækkun ferða­manna en fækkun þeirra, á­samt öðrum þáttum, leiða til þess að sam­dráttur lands­fram­leiðslu verði 8 prósent, eða 222 milljarðar króna. Þá verði sam­dráttur einka­neyslu 4 prósent og sam­dráttur fjár­festinga 14 prósent.

Svart­sýnasta spáin gerir ráð fyrir að nær engir ferða­menn komi til landsins og sam­dráttur lands­fram­leiðslu verði 18 prósent, eða 530 milljarðar króna. Fjár­festing muni dragast saman um 34 prósent, einka­neysla um 15 prósent og at­vinnu­leysi fara upp í 13 prósent.

„Megin­niður­staðan er sú að við erum að sigla inn í mjög djúpa kreppu sem gæti fært lands­fram­leiðslu á mann átta ár aftur í tímann, miðað við grunnsviðs­mynd,“ segir Kon­ráð S. Guð­jóns­son, aðal­hag­fræðingur Við­skipta­ráðs Ís­lands í Markaðnum í dag.