Verðmæti jafnréttis og persónuupplýsinga

Jafnrétti hefur beinan hagrænan ávinning fyrir samfélagið þar sem það nýtir betur mannauð þess. Ásta Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir frá fundi um jafnrétti hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), þar sem hún sat í pallborði. Hún ræðir einnig mikilvægi þess að nýta starfskrafta eldra reynslumikils fólks í samfélaginu.

Í síðari hluta þáttarins er rætt við Frey Hólm Ketilsson, framkvæmdastjóra Dattaclabs, en hann stendur fyrir því sem kallað er Hackathon um helgina í Háskólanum í Reykjavík. Nýjar Evrópureglur um meðferð persónuupplýsinga skapa ógnanir og um leið tækifæri í viðskiptum. Ísland á mikla möguleika á að taka forystu í heimi þar sem hver og einn er eigandi verðmætra upplýsinga um sjálfan sig. Freyr er í fararbroddi þeirra sem sjá mikil tækifæri í þessu nýja umhverfi.