Verð­könnun á jóla­mat: Þarna færðu ó­dýrasta matinn

Bónus var oftast með lægsta verðið í könnun verð­lags­eftir­lits ASÍ á jóla­mat sem gerð var á þriðju­dag. Allt að 2.750 kr. munur var á hæsta og lægsta kíló­verði af kjöti og 3.402 kr. munur á hæsta og lægsta kíló­verði af blá­berjum.

Þetta kemur fram í til­kynningu sem ASÍ sendi frá sér í dag. Mestur verð­munurinn var á græn­meti og á­vöxtum, kjöti, konfekti og ís.

Bónus var oftast með lægsta verðið, í 79 til­fellum af 137 en Hag­kaup oftast með hæsta verðið, í 51 til­felli. Í til­kynningu ASÍ er tekið fram að verð á mat­vöru geti breyst ört á þessum árs­tíma og ættu neyt­endur því að fylgjast vel með verð­breytingum vilji þeir gera hag­stæð inn­kaup á mat fyrir jólin.

Í helmingi til­vika yfir 40% munur á hæsta og lægsta verði

Al­gengast var að munur á hæsta og lægsta verði á jóla­mat væri undir 20%, í 64 til­fellum af 137 eða í 47% til­fella. Í 38 til­fellum af 137 eða 28% til­fella var munurinn 20-40% og í 34 til­fellum eða 25% til­fella var munurinn yfir 40%. Í 72 til­fellum eða í 53% til­vika var því munur á hæsta og lægsta verði yfir 40%.

Bónus var sem fyrr segir oftast með lægsta verðið í könnuninni, í 79 til­fellum af 137 og Krónan næst oftast, í 21 til­felli. Fjarðar­kaup var með lægsta verðið í 12 til­fellum, Nettó og Hag­kaup í 9 til­fellum, Iceland og Kjör­búðin í 8 til­fellum og Heim­kaup í 6 til­fellum. Hag­kaup var oftast með hæsta verðið eins og fyrr segir, í 51 til­felli af 137. Heim­kaup var með hæsta verðið í 28 til­fellum, Iceland 24 sinnum, Fjarðar­kaup í 23 til­fellum, Kjör­búðin í 12 og Nettó í sjö til­fellum.

Í verð­töflunni hér að neðan má sjá verð á öllum vörum í könnuninni. Ef ýtt er á nafnið á vöru­flokknum kemur felli­listi þar sem skipta má um vöru­flokk. Ef ýtt er á vöru­heitin raðast verslanirnar eftir því hver er með hæsta og lægsta verðið á við­komandi vöru. E merkir að varan hafi ekki verið til en em merkir að varan hafi ekki verið verð­merkt.

Allt að 2.750 kr. munur á kíló­verði á kjöti

Mestur verð­munur var á á­vöxtum, græn­meti, kjöti og konfekti og ís í könnuninni. Í sumum til­fellum nam munur á hæsta og lægsta kíló­verði á kjöti nokkur þúsund krónum. Mestur verð­munur í krónum talið var á kíló­verði af ís­lensku hangilæri frá Norð­lenska, þurr­verkuðu og hálf úr­beinuðu, 2.750 kr. eða 60%. Hæst var verðið í Iceland, 7.349 kr. en lægst í Krónunni 4.599 kr. Mestur hlut­falls­legur munur á hæsta og lægsta verði var á frosnum kjúk­linga­bringum, 163% eða 2.601 kr. Lægst var verðið í Bónus, 1.598 kr. en hæst í Nettó, 4.199 kr. Þá var 50% eða 1.300 kr. munur á hæsta og lægsta verði af tað­reyktu úr­beinuðu hangilæri frá Kjarna­fæði. Lægsta verðið var í Nettó, 2.599 kr. en hæsta verðið var í Hag­kaup, 3.899 kr.

Úr­val af kjöti var bæði mis­mikið og ó­líkt eftir verslunum í könnuninni og nokkur dreifing var á því hvar mátti finna lægstu verðin á kjöti. Neyt­endur eru hvattir til að fylgjast vel með örum verð­breytingum á mat­vöru í að­draganda jóla til að gera hag­stæð kaup á jóla­matnum.

Mikill verð­munur var á sumu konfekti en sem dæmi má taka 47%, eða 1.004 kr., mun á hæsta og lægsta verði af 260 gr. Nóa konfekt kassa. Hæsta verðið var í Kjör­búðinni, 3.139 kr. en lægsta verðið í Bónus, 2.135 kr. Þá var 43% munur á hæsta og lægsta verði af Kjörís konfekt í­stertu, 43% eða 942 kr. Lægsta verðið var í Bónus, 2.179 kr. en það hæsta í Heim­kaup, 3.120 kr.

Mikill verð­munur var á græn­meti og á­vöxtum en mestur munur var á hæsta og lægsta kíló­verði af blá­berjum 379% eða 3.402 kr. Hæst var kíló­verðið á blá­berjum í Iceland, 4.300 kr. en lægst í Bónus, 898 kr.

Um könnunina
Í könnuninni var hillu­verð á 137 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upp­lýsingar um þegar hann á­kveður hvort hann ætli að kaupa við­komandi vöru. Ef af­sláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.
Könnunin var fram­kvæmd í eftir­töldum verslunum: Nettó Mjódd, Bónus Korpu­torgi, Krónunni Granda, Fjarðar­kaupum, Iceland Engi­hjalla, Hag­kaup í Smára­lind, Kjör­búðinni Sand­gerði og á Heim­kaup.is. Hér er að­eins um beinan verð­saman­burð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu sölu­aðila.

Ó­heimilt er að vitna í könnunina í aug­lýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.