Vendingar í máli Sölva Tryggva: Atvikið átti sér stað – En það var annar maður að verki

Því er nú haldið fram að mál fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar, sem í einhverjum skilningi hóf nýja MeToo-bylgju á Íslandi, sé byggt á stórum misskilningi.

Það er Mannlíf sem greinir frá því, en þar segir að Sölvi sé ekki maðurinn sem gekk í skrokk á vændis­konu í mars 2021. Vísað er til upp­lýsinga frá lög­reglu og ó­nafn­greinds lög­manns mannsins sem á í raun og veru að hafa framið brotið.

Sjálfur neitaði Sölvi því á sínum tíma að vera umræddur maður, en sögu­sagnir um málið fóru manna á milli á sam­fé­lags­miðlum síðsat­liðið vor.

„Síðustu daga hafa gengið ó­­­trú­­lega rætnar slúður­­sögur um mig í þjóð­­fé­laginu sem eiga sér enga stoð í raun­veru­­leikanum,“ hafði Sölvi skrifað á Instagram.

Nú er fullyrt að annar maður en Sölvi hafi brotið á vændis­konu. Glæpurinn hafi átt sér stað en þar hafi Sölvi hvergi komið nærri.

Hinn brot­legi hafi ekki verið þjóð­þekktur og játað sök, að því er Mann­líf full­yrðir.

Þá er vísað í lög­mann hins mannsins:

„Þessi árás átti sér vissu­lega stað. Sölvi kom henni bara engu ná­lægt. Tíma­setningin passar og sjón­var­vottar hlúðu að konunni,“