Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir margvísleg brot.
Maðurinn var til dæmis ákærður fyrir líkamsárás og hótanir fimmtudaginn 21. Nóvember 2019. Maðurinn var þá í verslun Hagkaups við Spöng í Reykjavík þegar hann veittist að öðrum manni, sló hann í höfuðið og hótaði að búta hann niður. Samkvæmt ákæru var þetta til þess fallið að valda manninum ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Sama dag stal maðurinn vörum úr versluninni, farsímavörum og DVD-mynddisk, samtals að söluandvirði 7.497 krónur.
Maðurinn var ákærður fyrir ýmis þjófnaðarbrot úr verslunum yfir nokkurra mánaða tímabil. Var hann ákærður fyrir að stela lakkrís, brómberjum, hindberjum, hengilás, vettlingum, tölvumús, plastfígúrum og DVD-mynddiskum. Þá var hann ákærður fyrir nokkur fíkniefnabrot þar sem hann var gómaður með amfetamín og kannabisefni.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi en hann á sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 1991. Dómari leit til þess að maðurinn hefði átt við alvarlegan vímuefnavanda að stríða og þannig hafi efnin sem hann var gripinn með verið ætluð til eigin neyslu.
„Ákærði verður hins vegar að bera refsiábyrgð á gjörðum sínum þrátt fyrir fyrrgreindan vímuefnavanda,“ segir í niðurstöðu dómsins.
Auk þriggja mánaða fangelsis var manninum gert að greiða allan sakarkostnað til ríkissjóðs, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, 150 þúsund krónur.