„Þetta er líklega það auðveldasta sem við getum gert,“ segir Thomas Möller, hagverkfræðingur og sérfræðingur í rekstrarstjórnun, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
„Þegar ég var fyrir utan Kristjánsbakarí á Akureyri í blíðviðri í ágúst, tók ég eftir því að af átta bílum fyrir utan bakaríið voru fjórir skildir eftir í gangi, þar af einn mannlaus,“ segir Thomas sem segir að þá hafi rifjast upp fyrir honum ummæli þýsks vinar sem sagðist aldrei hafa séð eins marga bíla í lausagangi fyrir utan verslanir eins og hér.
„Í Þýskalandi er um 300 evru sekt við slíku og heyrir það til algjörra undantekninga að bílar séu skildir eftir í gangi.“
Thomas vísar í reglugerð um lausagang bifreiða á Íslandi en þar kemur fram að óheimilt sé að skilja ökutæki eftir í gangi þegar þau eru yfirgefin. Jafnframt sé óheimilt að láta vélar kyrrstæðra ökutækja ganga lengur en í örstutta stund nema sérstaklega standi á.
„Nýlegar rannsóknir í Bandaríkjunum sýna að meðalbíll notar um 40 lítra af eldsneyti í lausagangi á ári. Yfirfært á Ísland þýðir það að um 330 þúsund ökutæki nota um 13 milljón lítra á ári í lausagangi sem samsvarar um 30 milljón kílóum af kolefnisspori … í lausagangi!“
Thomas bendir á að bílar mengi þar að auki mest þegar þeir eru í lausagangi og vélarnar slitna einnig mest þá.
„Oft er fjallað um það hvað við getum gert til að minnka kolefnisspor okkar sjálfra. Þetta er líklega það auðveldasta sem við getum gert … bara drepa á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður! Nýlegar mælingar sýndu að mesta loftmengun í London er fyrir utan leikskóla þar sem foreldrar eru með bílana í gangi meðan börnin fara í og úr skólanum,“ segir Thomas sem endar pistil sinn á þessum orðum:
„Kæri lesandi, næst þegar þú gengur framhjá slíkum bíl skaltu bara biðja viðkomandi að drepa á vélinni … bara fyrir börnin!“