„Það er einfaldlega mjög óþægilegt fyrir veitingastaði, sem á að vera afslappandi upplifun að sækja, að hafa lögreglumenn ítrekað inni á gólfi hjá sér. Aðallega er þó óheppilegt þegar lögregla eða aðrir eftirlitsaðilar fara ekki eftir þeim skýru reglum sem settar eru.“
Þetta segir Erlendur Þór Gunnarsson hæstaréttarlögmaður í viðtali í Morgunblaðinu í dag, en þar er fjallað um mikla óánægju rekstraraðila veitingastaða í miðborginni vegna mismunandi túlkunar á reglum um opnun veitingastaða á tímum COVID-19.
„Ég hef heyrt af nokkrum stöðum í miðbænum þar sem lögreglan er að koma rétt fyrir klukkan 22 á kvöldin og hóta einhverjum sektum þar sem örfáir sitja og eru að klára að borða eða drekka drykki sína. Þessi hegðun minnir á ófagra stemningu í A-Evrópu á sínum tíma,“ segir Erlendur.
Að mati Erlends eru reglurnar mjög skýrar; þannig megi staðirnir vera opnir til klukkan 22 en gestum sé svo gefinn klukkustund til að klára drykki sína eða veitingar. Þá er vísað í reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem kveðið er á um að allir gestir skulu hafa yfirgefið veitingastað eigi síðar en klukkustund eftir lokun.
Í fréttinni kemur fram að enginn þeirra rekstraraðila sem hann starfar fyrir hafi fengið kæru eða sekt þrátt fyrir hótanir lögreglu. Segist Erlendur undrast vinnubrögð lögreglu.
„Áður en þetta ástand skall á, hvenær gerðist það síðast að lögregla var að mæta í hópum inn á fjölda veitingastaða og hóta sektum þegar allir gestir voru ekki farnir út nokkrum mínútum eftir lokun?“