Veiran nærist á ó­hollustu

„Veiran elskar eitur,“ segir Kol­brún Björns­dóttir grasa­læknir í við­tali við Ás­dís Ol­sen í Undir yfir­borðið. „Það er eitur í matnum okkar, kremunum og fötunum okkar."

Í þættinum hefur Kol­brún stór orð um skað­semi eitur­efna í um­hverfi okkar sem næra veiruna og veikja ó­næmis­kerfið. Hún segir manninn hafa skaðað jörðina og truflað náttúru­leg kerfi með alls­kyns inn­gripum, t.d. með því að erfða­breyta og eitra í ræktun mat­væla. „Við verðum að hætta að drepa og eitra“ segir hún.

Kol­brún segir ótta og streitu líka skað­lega heilsu okkar. Það sé lík­legt að korti­sól og adrena­lín næri veiruna líka. Stundum er fólk eins og gan­gandi skítug sund­laug,“ segir Kol­brún og segist stundum fá tár í augun þegar hún sér á­byrgðar­leysi fólks gagn­vart sjálfu sér.

Kol­brún segir þó enga á­stæðu til að óttast. „Það eru til alls­konar lausnir,“ og nú höfum við fengið gott tæki­færi til að taka til.

Þátturinn er að­gengi­legur á Hring­braut.is