Veiran náði Þór­ólfi að lokum: „Ein versta pest sem ég hef nokkurn tíman fengið“

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir greindist ný­verið með kórónu­veiruna og bættist þar með í hóp fjöl­margra Ís­lendingar sem hafa neglt sér í veiruna.

„Ég get sagt að þetta er ein sú versta pest sem ég hef nokkurn tímann fengið og hún hangir í manni lengi. Þannig í mínu til­felli var þetta ekki bara eitt­hvað kvef,“ segir Þór­ólfur í sam­tali við Vísi og bætir við að hann hafi orðið mikið veikur.

„Þetta nær í skottið á öllum á ein­hverjum tíma­punkti held ég. „Ég held að það sé mjög erfitt að forðast þetta því að Co­vid verður með okkur á­fram,“ segir Þór­ólfur jafn­framt.

Hann segir að smitið sé lýsandi fyrir út­breiðslu veirunnar og bætir við að tíðni endur­smita sé einnig að aukast.

„Ég held að þetta verði við­loðandi í ein­hvern tíma,“ segir Þór­ólfur.

Öllum tak­mörkunum var af­létt á Ís­landi í lok febrúar og hefur smitum farið fækkandi síðustu vikur eftir að hafa fjölgað hratt þar áður.

Þór­ólfur segir stöðuna á Land­spítalanum einnig vera að batna.