Rögnvaldur Ólafsson, frá Almannavörnum ræðir stöðuna sem komin er upp vegna Kovid-19 veirunnar. Rögnvaldur mætir í kvöld til Lindu Blöndal í þættinum 21.
Aðspurður af hverju Íslendingar sem koma frá áhættulöndum eru settir í sóttkví en ekki ferðamenn sem koma með sama flugi til landsins, segir Rögnvaldur að ferðamenn séu ekki í sömu nánd við aðra eins og Íslendingar sem vinna á fjölmörgum vinnustöðum og með börnum í skólum.
Reynt sé nú að lágmarka útbreiðslu veirunnar sem 20 manns hafa greinst með núna. Útbreiðslan verði ekki stöðvuð heldur einungis hægt að draga úr smitum.
Hver vegna fólk sem finnst ekki með veiruna, og komið hefur frá áhættusvæðum, er sett í sóttkví heima hjá sér segir Rögnvaldur að tekið geti tíma að fólk fari að finna fyrir einkennum flensunnar og því þurfi þennan tíma í einangrun þess heima fyrir.
Fordæmalaus viðbrögð við Kovitveiru smitum segir Rögnvaldur vera vegna þess hversu nálæg flensan er. Þegar t.d. SARS veiran eða Ebóla var á kreiki þá var það mun fjarri Íslandi.
Meira um þetta í 21 í kvöld á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut.