Örlagaríkt atvik árið 2007 varð til þess að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ákvað að hella sér út í verkalýðsbaráttu. Ragnar sagði frá þessu í þættinum Segðu mér sem var á dagskrá Rásar 2 um helgina og fjallað er um á vef RÚV í dag.
Ragnar var þá ásamt hópi vina og félaga í veiðiferð við Eystri-Rangá þegar einn úr hópnum, 35 ára vinur Ragnars og auk þess eiginmaður frænku hans, varð bráðkvaddur í ferðinni.
„Hann var ekki bara vinur, við erum fjölskylda. Hann er giftur frænku minni og þarna var ég með pabba mínum og við fjórða mann,“ sagði hann meðal annars í þættinum og bætti við að þarna hafi komið upp aðstæður sem hann hefði ekki getað ímyndað sér að lenda í.
„Að missa þarna náinn fjölskyldumeðlim í höndunum á okkur,“ segir Ragnar Þór. Reynd var endurlífgun sem ekki bar árangur og því var áfallið eðlilega mikið. „Það er svo mikill missir þegar þú ert með einhvern svona nátengdan þér.“
Í viðtalinu kom fram að þetta atvik hafi í raun orðið til þess að hann fór að hella sér út í að skoða lífeyrissjóðakerfið.
„Mögulega eftir á að hyggja hefur þetta verið mín leið til að takast á við áfallið. Það er kannski helsta skýringin að þetta hafi verið meira til að takast á við þetta áfall en eitthvað annað.“
Eitt leiddi af öðru og fyrr en varði var Ragnar orðinn fastagestur í fjölmiðlum þar sem hann ræddi um baráttumál sín.
Þeir sem þekkja til Ragnars vita að hann er yfirleitt rólegur og yfirvegaður og það þarf mikið til að reita hann til reiði. „Mögulega líta einhverjir á mig sem óvin en ég á enga óvini og óska engum neins ills. Því held ég að það sé mjög leiðinlegt að hata mig. Ekkert stuð.“